Lýsing
Dr. Mercola notar ferjur eins og finnast í Taramar vörunum til að efla flutning lífvirkra efna yfir frumuhimnur þannig að lífvirku efnin séu tekin betur upp og færð á þá staði í líkamanum þar sem eiginleikar þeirra fá að njóta sín.
Ferjurnar eru myndaðar úr fosfólípíðum, en þau finnast í öllum frumum líkamans og eru megin byggingarefni frumahimna hvort sem er í húð, vöðvum eða meltingarvegi.
Upptaka á C vítamíni er hæg í líkamanum, sérstaklega þegar um er að ræða venjulegar C-vítamín töflur. Megnið af C-vítamín inntöku er því pissað aftur úr með þvagi. Liposomal C vítamínið frá Dr. Mercola er þróað með þetta í huga og þar gagnast ferjurnar ákaflega vel og gjörbreyta upptöku á þessu mikilvæga vítamíni.
Ferjurnar sem mynda Lípósómal C vítamínið vernda vítmínið gegn oxun og margfalda flutningsgetu yfir himnur þannig að vítamínið kemst hraðar og betur inn í líkamann og nær á endastöð án þess að brotnað niður og missa hluta af heislubætandi eiginleikum sínum