TARAMAR næturkrem 30ml.

13.400 kr.13.900 kr. m/vsk

TARAMAR næturkremið er með öfluga lífvirkni og veitir raka og næringu. Styrkir húðfrumurnar meðan þú sefur og hefur uppbyggjandi áhrif. Dregur úr hrukkumyndun, styrkir collagen þræðina og gerir áferð húðarinnar slétta og silkimjúka. Kremið er 30 ml.

Mögulegt er að kaupa vöruna án pappaöskju með 500 króna afslætti. Veljið hér fyrir neðan.

Villt þú afslátt? Komdu í vildarklúbbinn!
Vörunúmer: 1002 Flokkur: Merkimiðar: , ,

TARAMAR næturkremið er með öfluga lífvirkni og veitir raka og næringu. Styrkir húðfrumurnar meðan þú sefur og hefur uppbyggjandi áhrif. Dregur úr hrukkumyndun, styrkir collagen þræðina og gerir áferð húðarinnar slétta og silkimjúka.

Næturkremið hefur hlotið 5 alþjóðleg verðlaun, gull í bæði Global Makeup Awards Scandinavia 2020 og Global Makeup Awards UK 2021. Fyrstu verðlaun hjá Noridc Natural Beauty Awards 2021 og silfur hjá Free From Skincare Awards 2021 og silfur í global green make up awards 2021.

Afhverju eru næturkrem svona mikilvæg?

Nóttin er einn mikilvægast tími sólarhringsins fyrir húðina. Þegar við höllum höfði í lok dags og kyrrum hugann þá vaknar húðin og setur af stað mikilvæga ferla sem standa yfir í marga klukkutíma. Oft er talað um hina gullnu stund húðarinnar sem stendur frá 1-4 um nóttina. Á þessum tíma losar húðin sig við úrgangsefnin. Blóðflæðið til húðarinnar eykst og framleiðsla kollagen þráða og annarra byggingarefna eins og elastin eykst einnig.  Öll þessi framleiðsla og aukin efnaskipti í húðinni geta þó valdið rakatapi og hjá sumum er það svo mikið að fólk vaknar með mun þurrari húð að morgni en þegar það fór að sofa.

TARAMAR vörurnar eru hannaðar til að mæta öllum þessum þáttum og áhersla hefur verið lögð á að nota eins mikið og hægt er af efnum úr náttúru Íslands til að aðstoða húðin við þá vinnu sem hún fer í á nóttunni. Kremið er því þróað sérstaklega til að taka þátt í þessum ferlum m.a. með því að styðja við kollagen framleiðsluna og á sama tíma verja húðina gegn vökvatapi. Auk þessa inniheldur næturkremið ákaflega flott peptíð sem hefur áhrif á tengingar á milli húðlaganna.  Málið er að þegar við eldumst þá byrja þessar tengingar að rofna, en húðin er samsett úr mörgum lögum sem tengjast saman m.a, með bandvef. Þegar þessar tengingar rofna þá verður húðin slök og byrjar að síga. Þetta kemur m.a. fram í hrukkum og stundum djúpum dölum í húðinni.  Peptíðið sem við notum, endurgerir þesssar tengingar. Þetta peptíð örvar myndun eggjahvítuefna (integrin og laminin) sem eru mikilvæg í að halda þessum tengingum góðum.  Samspil þessa efnis og þörunganna okkar er ákaflega skemmtilegt því við höfum sýnt fram á að þörungarnir stoppa niðurbrot kollagen og elastin í húðinni. Þessi efni til samans með íslenska fjólu- og augnfróar extrötunum sem bæði hafa undraverð áhrif á raka í húð og verja hana gegn vökvatapi; geta því haft stórkostlega flott áhrif og jákvæðar breytingar sem sjá má með berum augum.

Næturkremið kemur í 30ml. flöskum

 

Hvernig er best að nota næturkremið?

Auðvelt er að gera notkun þessa krems að upplifun í lok dags.  Ilmkjarnaolíurnar sem eru notaðar í þetta krem eru valdar til að róa hugan og efla jákvæða sjálfsmynd.  Þannig hjálpa þær við að finna sátt og gleði innra með okkur.

Best er að pumpa smá næturkremi í lófann og bera á út frá miðju andlitsins, í kringum augun og út með kinnbeinunum, niður á hökuna og strjúka kreminu vel inn á svæði þar sem línur og hrukkur eru að myndast. Þannig nær kremið inn í húðina og hjálpar henni við að styrkja kollagenþræðina og draga úr öllum ójöfnum. Athugið að þetta krem má bera á allt augnsvæðið. Einnig got að muna eftir hálsinum.

Sjá nánari upplýsingar í myndbandi og flettibók hér að neðan. Myndbandið og flettibókina má stækka upp í fulla stærð. Best er að fletta bókinni með því að klikka á efra hægra hornið.

 

INNIHALD
Aqua**, Prunus Armeniaca Kernel Oil*, Euphrasia Officinalis Extract*, Alaria Esculenta Extract**, Squalene, Butyrospermum parkii Butter*, Lactobacillus Ferment, Lactobacillus/Oat Ferment Extract Filtrate, Caprylic/Capric Triglyceride*, Helianthus Annuus Seed Oil, Cetearyl Olivate, Sorbitan Olivate, Pseudoalteromonas Ferment Extract, Sclerotium Gum, Agonic Fragrans Branch/Leaf Oil, Glycerin, Rosa Canina Fruit Extract, Caprylyl Glycol, Hexapeptide-10, Gernaiol***, Limonene***. Linalool***, Citronellol***

* Organically certified, ** Pure wild source, *** Natural component of essential oils

Frekari upplýsingar

Þyngd ,150 kg
Ummál 7 × 4 × 13 cm
Umbúðir:

Í pappaöskju, án pappaöskju