Tilboð

Tækifærisgjöf

Original price was: 19.800 kr..Current price is: 9.900 kr.. m/vsk

Tækifærisgjöfin inniheldur tvær vinsælar TARAMAR vörur: dagkrem (30 ml) og andlitsúða (25ml). Dagkremið er mest selda TARAMAR varan og hefur stórkostlega getu  til að næra og endurbyggja húðina svo hún verður mjúk, teygjanleg og sterk. Andlitsúðin er ný TARAMAR vara sem hefur náð töluverðum vinsældum á þeim stutta tíma sem hann hefur verið á markaði.  Úðinn er mjög lífvirkur og fólk notar hann til að fríska upp á húðina, framkalla ljóma, draga úr örveruvexti, stoppa oxun og auka raka.

 

TARAMAR Andlitsúði

Þessi andlitsúði byggir á lífvirkni rósarinnar en hún hefur ákaflega góð áhrif á húð og er þekkt fyrir að róa húðina, auka raka og þéttni.  Auk hennar settum við útdrátt úr íslensku birki, en það er þekkt fyrir að lyfta, þétta og lýsa húðina. Einnig er sagt að það geti aukið kollagenframleiðslu í húðinni. Að lokum þá settum við einnig útdrátt af íslenskri lindarfuru, Inkagulli og baunum sem innihalda mikið af B-vítamínum og hafa eiginleika til að fá húðina til að ljóma og stuðla að jafnari hörundslit með því að draga úr mislitun á húðinni og gera dökka bletti ljósari.

Á lager

TARAMAR dagkrem

Dagkremið er rakagefandi lífvirkt krem úr íslenskum jurtum og þangi. Kremið endurvekur húðina og gefur henni teygjanlega áferð og heilbrigðan blæ. Það sem gerir kremið svo einstakt er að í því eru náttúrulegar ferjur (liposomes) sem koma hinum virku efnum inn í dýpri lög húðarinnar.

Mögulegt er að kaupa vöruna án pappaöskju með 500 króna afslætti. Veljið hér fyrir neðan

Vörunúmer: PAKKI107 Flokkar: , ,

Frekari upplýsingar

TARAMAR dagkrem

Þyngd ,150 kg
Ummál 7 × 4 × 13 cm
Umbúðir:

Í pappaöskju, án pappaöskju